Þau okkar sem lögðu það á sig að vaka eftir seinni fréttatíma Ríkissjónvarpsins í gærkvöld þurfa ekki að sjá eftir því. Þar var nefnilega dregið fram til birtingar viðtal, sem var þeim sem á horfðu, þvílík opinberun að leitun er á öðru eins.
Viðtalið var við dýrasta þingmann Sjálfstæðisflokksins, mann sem ætíð rís talsvert upp yfir umhverfi sitt og leggur eitthvað það til málanna sem eftir er tekið. Vonandi er að Sjónvarp allra landsmanna sjái sér fært að sýna manninn í viðtölum, sem og á annan veg, sem allra oftast. Því þegar hann tekur til máls, þá hefur hann ætíð eitthvað verulega mikið fram að færa og þó ekki hefji hann upp raust sína, þá er vafalaust flestum ljóst að það er eingöngu vegna þess að hann er í augnablikinu upptekinn við að hugsa upp eitthvert snjallræði, þjóð sinni til bjargar og vegsemdar.
Í viðtali gærdagsins var þingmaðurinn spurður út í mál sem hvílt hefur talsvert þungt á almenningi og þá ekki síst þeim sem berjast í bönkum og baslast við að standa skil á lánum sem þeir hafa tekið til að geta haft þak yfir höfuð sér.
Þau sem farin voru að fyllast vonleysi, örvæntingu eða depurð, yfir að hið afburðagóða kerfi sem fundið var upp til tryggingar lánunum væri þeirrar gerðar að nær útilokað væri að greiða þau til fulls, fengu vegna hinnar ljómandi góðu, upplýsandi og greinargóðu orðræðu þingmannsins von. Svo ekki sé nú sagt fullvissu um, að ef hann og hinir frelsararnir í flokknum hans kæmust til valda, þá yrði hinu hroðalega skuldafargi af þeim létt.
Auðvitað. Hvernig stendur á því að engum hafði dottið þetta í hug fyrr? Vitanlega eru þeir bestir og færastir um að töfra til baka verðtryggingarkerfið og láta lánin gufa upp, þeir hinir sömu sem á sínum tíma fundu hið margrómaða kerfi upp. Fyrir nú utan það, að flokksbræður og systur hins mikilhæfa þingmanns, hafa af því langa reynslu að láta lán hverfa. Fram til þessa hafa það að vísu verið lán þeirra sem átt hafa mikið undir sér sem horfið hafa. Nú á hins vegar að nýta þá reynslu sem hann og félagar hans hafa náð sér í, allar götur frá því að stjórnmálaflokkurinn sem hann kennir sig við var stofnaður, í útþurrkun lána og ríkisvæðingu skulda fyrirmenna, svokölluðum almenningi til bjargar og hagsbóta.
Að hinni Vinstri- grænu- jafnaðarstjórn sem við völd situr skuli ekki hafa dottið snjallræðið í hug, er náttúrulega einungis til merkis um hve ófrjó hin vinstri sinnaða hugsun er. Þarna eru þau búin að rembast eins og rjúpan við staurinn, við að gera eitt og annað til lausnar á vandanum, en hefur ekki dottið í hug að leita ráða hjá þeim sem á sínum tíma bjuggu vandann til. Hvílíkt og annað eins! Er þessu fólki alls varnað? Vitanlega kann enginn betur að stöðva farartækið en sá sem hefur komið því af stað. Liggur það ekki í augum uppi þegar málið er skoðað, þó að vísu megi finna dæmi þess, að t.d. börn hafi fyrir slysni komið einhverju af stað fyrir hreinan barnaskap og ekki kunnað að stöðva það aftur. Það er náttúrulega allt annað mál og á augljóslega ekki við í þessu sambandi.
Þökk sé því Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrir að hafa loksins rofið þögnina og svipt hulunni af formúlunni sem nota á í núverandi ástandi: Nefnilega fella bara einfaldlega niður óbærilegar skuldir, en leyfa þeim bærilegri að halda sér. Snjallt og augljóst, frábært og dýrðlegt; í einfaldleika sínum allt að því himneskt og alls ekki útilokað að þingmaðurinn hafi fengið vitrun sína á biblíulegum stað, svo snjöll er hún í einfaldleika sínum.
Til að alls réttlætis sé gætt, er rétt að taka það fram svo enginn misskilningur eigi sér stað, að hinn sjónum-hryggi þingmaður, var ekki alveg með það á tæru hvernig gjörningurinn yrði framinn þegar þar að kæmi. Hins vegar var auðskilið öllum, sem skilja vildu, að það væri bara minni háttar útfærsluatriði sem auðleyst yrði þegar á reyndi. Ekki yrði farið yfir lækinn til að sækja vatnið. Heldur yrði lækurinn einfaldlega þurrkaður upp.
Gott er að eiga góða að.


